Sunnudagur, 18. júlí 2010
Stuð á kvöldvöku

Það var mikið fjör á kvöldvökunni í gær og skemmtu allir sér konunglega. Lalli töframaður sýndi galdrabrögð, og svo mætti Solla stirða á svæðið og tók nokkrar leikfimiæfingar með stelpunum og kenndi þeim Bing bang dansinn. Það ætlaði allt að verða vitlaust þegar Ingó Veðurguð steig á svið og sungu allir hástöfum með Bahamas og fleiri góðum lögum. Hægt er að sjá myndbönd frá kvöldvökunni hér að neðan.




Solla stirða




Stelpurnar syngja með Ingó Veðurguði

 
Laugardagur, 17. júlí 2010
Þakkað fyrir leikinn

Það er oft hart barist á Símamótinu, en eftir leikina leggja stúlkurnar keppnisskapið til hliðar og sameinast liðin oft í því að þakka hvort öðru fyrir leikinn og fagna góðri og drengilegri keppni.




Sindri og Álftanes þakka fyrir leikinn




Grindavík og ÍR þakka fyrir leikinn




Selfoss og Fylkir fagna góðum leik

 
Laugardagur, 17. júlí 2010
Torres og Messi bestir

Þessar skemmtilegu Blikastelpur heita Eydís, Heiðrún, Hrafnhildur, Hugrún og Aþena. Þær eru 7. flokki Breiðabliks og eru allar í Argentínuliðinu, eða A1 liðinu. Hrafnhildur sagði mér að tvíburnarnir, þær Eydís og Hugrún, væru bestar í heimi í fótbolta. Þær voru nú ekki sammála því þar sem það væru fullt af köllum í heiminum sem væru betri, t.d. Torres og Messi. Þær horfðu allar mikið á HM og héldu allar með Spáni, en sumar héldu þó líka með Argentínu og Þýskalandi. Uppáhaldsliðin þeirra, auk Breiðabliks, eru Liverpool og Spánn. Þær sögðu mér að grasið og trén haldi með Breiðablik, en himinninn haldi aðallega með Fram, en samt líka með Víði, Stjörnunni og Álftanesi.
 
Laugardagur, 17. júlí 2010
Aðalmálið að hafa gaman

Þessar kátu KA stelpur eru í 6. flokki C. Þær eru búnar að spila nokkra leiki og hefur liðið náð góðum árangri og skorað nokkur mörk. Þær eru sammála því að það sé aðalmálið á svona móti að hafa gaman. Þær spila nokkra leiki í dag og þær segja að það skipti engu máli þó dagskráin sé frekar þétt, það sé bara gaman. Þær fóru ekki á Breiðablik-KR leikinn í gær þar sem þær voru þreyttar eftir daginn, enda búnar að hlaupa mikið og ganga alla leið í Kópavogslaugina í sund.

 
Föstudagur, 16. júlí 2010
Hressar stelpur frá Álftanesi

Þær Freyja og Viktoría eru 9 og 8 ára og eru í 6. flokki A hjá Álftanesi. Freyja spilar frammi en Viktoría yfirleitt á kanti. Þær voru bara búnar að spila einn leik þegar ég hitti þær og gekk leikurinn, sem var við Þór, ágætlega. Þær voru ekki alveg með á hreinu hvaðan Þórsstelpurnar eru en Viktoría var alveg með á hreinu að Skallagrímur, sem var næsti andstæðingur þeirra, er frá Borgarnesi. Þær fóru báðar í skrúðgönguna í gær og ætluðu síðan á leikinn í kvöld.
 
Föstudagur, 16. júlí 2010
Sindrastúlkur

Þessar hressu Sindrastúlkur heita Birna Rós og Arna Ósk. Þegar ég hitti þær var Guðný Olga með þeim en hún var hlaupin í burtu þegar myndin var tekin. Þær eru allar í sama liði í 7. flokki, en Birna Rós og Arna Ósk eru 7 ára, en Guðný Olga er 5 ára, og nýhætt á leikskóla. Þeim var búið að ganga vel og hafði liðið náð að skora 2 mörk á mótinu. Þær áttu bara einn leik eftir í dag en sögðust svo ætla bara að fara inn að sofa eða að borða kvöldmat. Eftir smá umhugsun leiðréttu þær það þó og sögðust vera á leið í sund eftir síðasta leikinn, svona til að skola svitann af sér. Þær vissu ekki alveg hort þær færu á Breiðablik-KR leikinn í kvöld, en héldu það.

 
Föstudagur, 16. júlí 2010
Skólaus æfing

Þegar ég hitti þær Önnu, Mörthu, Evu, Margréti og Emilíu voru þær að æfa sig, en voru meira en til í að gera smá hlé á æfingunum til að tala við mig. Þær eru allir í 5. flokki B í Aftureldingu og sögðu að það væri búið að vera gaman á mótinu og bara búið að ganga vel. Þær voru að hvíla og lofta um fæturna og voru því ekki í skóm, en leist ekki vel á þá hugmynd að spila næsta leik skólausar þar sem það yrði örugglega stigið ofan á þær.
Þær fóru allar í skrúðgönguna og sögðust hafa öskrað nafn síns liðs mjög hátt. Þeim fannst þeir Gunni og Felix fínir, og nokkrar þeirra tóku undir með þeim. Þær áttu bara einn leik eftir í dag en hlakkar allar til að keppa á morgun.

 
Föstudagur, 16. júlí 2010
Gunni og Felix á setningu Símamótsins




Myndband

 
Föstudagur, 16. júlí 2010
Skrúðganga




Myndband

 
Fimmtudagur, 15. júlí 2010
Skagastelpur þakka fyrir matinn

Stúlkurnar á Símamótinu eru duglegar að þakka fyrir sig og áðan sungu hressar Skagastúlkur heimatilbúinn texta fyrir starfsfólk eldhússins




Myndband